Fara í efni
26.11.2020 Fréttir

Sektarlaus vika á Bókasafni Vestmannaeyja!

Í aðdraganda jóla og við upphaf nýs árs huga margir að syndum liðinna daga.

Deildu

Bókasafn Vestmannaeyja vill hjálpa til við að lýsa leið til betrunar með því að bjóða upp á „sektarlausa viku” 20. – 30. nóvember. Unnt er að skila bókum á safnið á opnunartíma eða í póstkassa við útidyr, án eftirmála. Kærkomið tækifæri til að gera hreint fyrir sínum dyrum og hefja nýtt ár með gleði hins syndlausa lánþega.