Fara í efni
22.01.2021 Fréttir

Samvinna eftir skilnað – Barnanna vegna

 Vestmannaeyjabær er eitt af 8 sveitarfélögum sem hafa fengið tækifæri til þess að taka þátt í tilraunaverkefninu, Samvinna eftir skilnað - Barnanna vegna. 

Deildu

Verkefnið felur í sér innleiðingu sérhæfðrar skilnaðarráðgjafar í félagsþjónustu og hafa starfsmenn félagsþjónustunnar í Vestmannaeyjum nú lokið námskeiði og öðlast SES ráðgjafaréttindi. Um er að ræða gagnreynt námsefni sem ætlað er að hjálpa foreldrum við að takast á við breytingar og áskoranir sem algengar eru í kjölfar skilnaðar eða sambúðarslita. Markmið verkefnisins byggir á því að foreldrar fái ráðgjöf og þjálfun til að draga úr ágreiningi sem og að stuðla að betri foreldrasamvinnu með hagsmuni barnsins að leiðarljósi.

Samvinna eftir skilnað var upphaflega þróað í Danmörku. Efnið byggist á nýjustu þekkingu, sem byggir á bæði rannsóknum fræðimanna og reynslu fagfólks. Rannsóknir hafa sýnt marktækan mun á líðan þeirra sem taka þátt í verkefninu og þeirra sem ekki gera það. Það hefur einnig ýtt undir betri foreldrasamvinnu og meðal annars leitt til þess að foreldrar sem gengið hafa gegnum umrætt námskeið upplifa minni streitu og taka töluvert færri veikindadaga frá störfum sínum en ella. Allt þetta bendir til þess að námskeið sem þetta komi foreldrum og börnum þeirra til góða.

Verkefnið snýr annars vegar að aðgangi foreldra af rafrænu námskeiði og hins vegar að hópnámskeiði eða viðtalsráðgjöf hjá SES ráðgjöfum Vestmannaeyjabæjar. Nýjar danskar rannsóknir benda til verulegs ávinnings af því að nota þessa rafrænu fræðslu, auk ráðgjafar og námskeiðshalds fagfólks hjá sveitarfélögunum.

Foreldrum 0-18 ára barna í Vestmannaeyjum sem standa í skilnaði eða hafa gengið í gegnum skilnað/sambúðarslit stendur nú til boða að sækja um þessa þjónustu. Hægt er að sækja um í gegnum mínar síður inn á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar, senda póst á ses@vestmannaeyjar.is eða hafa samband við starfsmenn félagsþjónustu.

Starfsmenn félagsþjónustunnar hlakka til að taka þátt í þessu verkefni og vonast eftir góðum viðbrögðum.