Fara í efni
26.11.2026 Tilkynningar

Samúðarkveðjur frá Vestmannaeyjum

Deildu

Vestmannaeyingar senda aðstandendum sjómannanna þriggja sem létust í sjóslysinu fyrir austan sínar innilegustu samúðarkveðjur. Á þessari sorgarstundu er hugur okkar hjá áhöfn Jökuls og öllum þeim sem eiga um sárt að binda. Í samúðar- og virðingarskyni verður flaggað í hálfa stöng við Ráðhús Vestmannaeyja í dag.

Fyrir hönd Vestmannaeyinga

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri