Í dag var undirritaður nýr samstarfssamningur milli Vestmannaeyjabæjar og Tónlistarskóla Vestmannaeyja vegna starfsemi Skólalúðrasveitar Vestmannaeyja. Samningnum er ætlað að efla samstarf og styrkja umgjörð um starfsemi sveitarinnar til framtíðar.
Samkvæmt samningnum mun Vestmannaeyjabær veita Skólalúðrasveitinni árlegan rekstrarstyrk. Á móti mun sveitin taka þátt í ýmsum menningar- og samfélagsviðburðum í bænum, meðal annars við athöfn í tengslum við bæjarlistamann Vestmannaeyja, á safnahelgi, við skólaslit Grunnskóla Vestmannaeyja og á Barnamenningarhátíð.
Skólalúðrasveitin hefur um árabil verið mikilvægur þáttur í menningarlífi Vestmannaeyja og gegnir mikilvægu hlutverki í tónlistarmenntun barna og ungmenna. Með samningnum er lagður grunnur að áframhaldandi öflugu samstarfi sem styður við starf sveitarinnar og eykur þátttöku hennar í menningarstarfi bæjarins.



