Með samningnum er settur sameiginlegur rammi um útgáfu og notkun gjafakortanna sem Vestmannaeyjabær afhendir starfsfólki sínu í jólagjöf ár hvert. Sem fyrr eru kortin gild hjá fyrirtækjum sem eru aðilar að Félagi kaupsýslumanna í Vestmannaeyjum.
Með samstarfinu er lögð áhersla á að styðja við verslun og þjónustu í heimabyggð og stuðla að því að jólagjöf bæjarins skili sér til fyrirtækja í Vestmannaeyjum.
Samningurinn markar formlegt samstarf milli aðilanna um fyrirkomulag gjafakortanna og uppgjör þeirra.
