Fara í efni
04.04.2011 Fréttir

Samstarf um rekstur tjaldsvæða

Vestmannaeyjabær óskar eftir samstarfi við áhugasama aðila um rekstur tjaldsvæða.
Deildu
Innifalið í tilboði skal vera allur rekstrarkostnaður við þjónustuna.  Vestmannaeyjabær mun þó leggja til húsnæði og annan fastan búnað. Um er að ræða tjaldsvæðið í Herjólfsdal og við Þórsheimilið og er hægt að gera tilboð annað hvort og/eða bæði.
Við yfirferð tilboða verður m.a. litið til:
1.       Kostnaðar við þjónustu
2.       Aðbúnað ferðamanna
3.       Aðgengi að þjónustu svo sem tölvum, nettengingu, veitingum, minjagripum og fl.
4.       Framtíðar sýnar hvað samstarfið varðar
Vestmannaeyjabær áskilur sér rétti til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
 
Nánari upplýsingar og útlistun á hugmyndum Vestmannaeyjabæjar um samstarf er hægt að fá í afgreiðslu Ráðhússins eða með tölvupósti á netfangið margret@vestmannaeyjar.is.  Frestur til að skila inn hugmyndum að samstarfi í samræmi við gögn hefur verið veittur til 15. apríl n.k.
 
Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós Ingólfsdóttir verkefnastjóri.