Fara í efni
18.09.2014 Fréttir

Samræmd könnunarpróf í 4., 7., og 10. bekk 2014

Í næstu viku, vikuna 22. – 26. september   munu nemendur í 4. bekk, 7. bekk og 10. bekk þreyta samræmd könnunarpróf.
Deildu
Þessi próf  gefa þeim tækfæri til að sýna hvað í þeim býr.  Nemendur í 7. og 10. bekk hafa nú tækifæri til að bæta árangur sinn  frá  því er þeir  þreyttu samræmd próf fyrir þremur árum og nemendur 4. bekkja eru að takast á við verkefnð í fyrsta sinn  og því  mikilvægt að þeir fái öfluga hvatningu  og stuðning svo að þeir nái að gera sitt besta.  Við hin, foreldrar, kennarar og samfélagið  allt , verðum  líka að leggja okkur fram.   Árangur og framfarir nást  ekki nema með þrotlausri vinnu og þrautseigju og það er okkar allra að stuðla að því að svo geti orðið.

Með óskum um velgengni, framfarir og góðan árangur

Erna Jóhannesdóttir

fræðslufulltrúi