Fara í efni
01.09.2026 Fréttir

Samantekt yfir skipakomur í sumar

Þrátt fyrir að sumarið sé ekki búið í Vestmannaeyjum er hér samantekt yfir skipakomur það sem af er sumri.

Deildu
default

Til okkar hafa komið 82 skemmtiferðaskip með rétt rúmlega þrjátíu og þrjú þúsund farþega. Árið 2023 var met í komu skemmtiferðaskipa en þá tókum við á móti 97 skipum og fengum til okkar 33.214 þarþega. Vantar okkur 146 farþega upp á að jafna farþegametið frá 2023.

Í september eigum við von á þremur skipum þann 19., 22. og 25. og klárast þá skemmtiferðaskipavertíðin hér í Vestmannaeyjum sumarið 2026.

Undanfarna fjóra mánuði höfum við auk skemmtiferðaskipa fengið til okkar:
Gámaskip 28
Olíuskip 6
Saltskip 1
Mjölskip 3
Fóðurskip 7
Sandskip 2
Lýsisskip 2
Brunnbáta 7
Annað 3

Samtals 141 skipakoma, en þessar tölur eru fyrir utan komur fiskiskipa og Herjólfs og ná yfir maí, júní, júlí og ágúst.

Starfsmenn hafnarinnar og atvinnulífið allt á hrós skilið fyrir mikil afköst sumarið 2026.