• Ráðgjöf til foreldra barna og starfsfólks leik- og grunnskóla.
• Forvarnarstarf.
• Sálfræðilegar athuganir og greiningar á börnum, ráðgjöf og eftirfylgd mála.
• Fræðsla og námskeið fyrir foreldra, nemendur og starfsfólk skóla.
• Ráðgjöf og meðferð fyrir fjölskyldur og börn sem njóta þjónustu barnaverndar og félagsþjónustu.
Sálfræðingur vinnur í þverfaglegu samstarfi við starfsfólk skóla, starfsfólk félagsþjónustu og aðra sérfræðinga.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Sálfræðimenntun og réttindi til að starfa sem sálfræðingur
• Sjálfstæði í vinnubrögðum
• Góðir skipulagshæfileikar
• Færni í mannlegum samskiptum
• Hæfni í þverfaglegu samstarfi
Upplýsingar veitir Jón Pétursson framkvæmdastjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs Vestmannaeyjabæjar (jonp@vestmannaeyjar.is) í síma 488 2000.
Umsóknarfrestur er til og með 15. ágúst 2016.
Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsóknum á netfangið jonp@vestmannaeyjar.is. Með umsókn þarf að fylgja ferilsskrá um fyrri störf og menntun ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni í starfið.
