Fara í efni
27.12.2005 Fréttir

Sænsk- íslenski samstarfssjóðurinn

Árið 2006 verða veittir úr Sænsk-íslenska samstarfssjóðnum nokkrir ferðastyrkir. Markmið sjóðsins er að stuðla að auknu samstarfi Svíþjóðar og Íslands á sviði vísinda, menntunar og menningar.
Deildu

Árið 2006 verða veittir úr Sænsk-íslenska samstarfssjóðnum nokkrir ferðastyrkir. Markmið sjóðsins er að stuðla að auknu samstarfi Svíþjóðar og Íslands á sviði vísinda, menntunar og menningar.

Um styrki þessa skal sótt á sérstökum eyðublöðum sem fást í menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík og á skrifstofu Norræna félagsins í Stokkhólmi, Box 127 07, S-112 94 Stockholm og þangað skulu umsóknir einnig sendar. Umsóknareyðublöð eru einnig á vef menntamalaraduneytis og norden.se. Umsóknir skal stíla á stjórn Sænsk-íslenska samstarfssjóðsins.

Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2006. Styrkjunum verður úthlutað í mars.

Stjórn Sænsk- íslenska samstarfssjóðsins.

Af vef mrn. / Fræðslu- og menningarsvið Vestmannaeyjabæjar.