Fara í efni
27.03.2026 Fréttir

Rekstur Vestmannaeyjabæjar jákvæður um 781 milljón króna

Besta niðurstaða í 15 ár

Deildu
Ráðhús stjórnsýsla

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti ársreikning Vestmannaeyjabæjar fyrir 2025 á fundi sínum þann 25. mars sl. 

Kjörtímabilið er að renna sitt skeið og því er þetta síðasti ársreikningur sem þessi bæjarstjórn afgreiðir. Niðurstöður ársins sýna að sveitarfélagið stendur traustum fótum við lok kjörtímabilsins.

  • Niðurstaða samstæðu bæjarins (A- og B- hluta) er jákvæð um 781 m.kr. sem er um 345 m.kr. umfram áætlun. Þetta er besta rekstrarniðurstaða Vestmannaeyjabæjar í 15 ár.

  • Rekstrarafkoma A- hluta er jákvæð um 296 m.kr og um 536 m.kr. fyrir afskriftir og fjármagnsliði sem sýnir að rekstur bæjarins er sjálfbær í erfiðu rekstrarumhverfi sveitarfélaga.

  • Fjárfestingar samstæðu hafa aukist á árinu og þær hafa allar verið fjármagnaðar af eigin fé og ekki hefur komið til lántöku. Fjárhagsstaðan er sterk og handbært fé frá rekstri um áramót var 1.761 milljón.

  • Undanfarin ár hefur markvisst verið unnið að því að greiða niður skuldir bæjarsjóðs sem gerir það að verkum að skuldastaða bæjarins er töluvert betri en flestra annarra sveitarfélaga. A- hluti (sveitarsjóður) er skuldlaus við fjármálastofnanir.

  • Handbært fé samstæðunnar nemur tæpum 2,4 milljörðum við árslok 2025. 

Nánari upplýsingar um ársreikning og helstu niðurstöður hans er að finna í meðfylgjandi glærum sem fylgdu framsögu bæjarstjóra á fundinum. Þar má einnig sjá lykiltölur í rekstri sveitarfélagsins 2006-2025 sem bæjarstjóri fór yfir. 

Glærur með framsögu má nálgast hér.

Ársreikninginn má nálgast hér. 

Upptöku af framsögu bæjarstjóra má sjá hér.