Fara í efni
23.08.2007 Fréttir

Rafmagn fer af í nótt

Undanfarið hefur staðið yfir undirbúningur að spennubreytingu raforkukerfisins í Eyjum úr 6,3 kV kerfi í 11 kV kerfi. Raunar hefur undirbúningur staðið yfir í nokkur ár því við kaup á nýjum spennum hefur þess verið gætt að hægt væri, með lítilli f
Deildu

Undanfarið hefur staðið yfir undirbúningur að spennubreytingu raforkukerfisins í Eyjum úr 6,3 kV kerfi í 11 kV kerfi. Raunar hefur undirbúningur staðið yfir í nokkur ár því við kaup á nýjum spennum hefur þess verið gætt að hægt væri, með lítilli fyrirhöfn, að breyta þeim úr 6,3 í 11 kV. Einnig hafa verið lagðir nýir jarðstrengir.

Breytingin mun eiga sér stað aðfaranótt föstudagsins 24.ágúst n.k. og verður af þeim sökum rafmagnslaust í bænum frá kl. 1 og fram eftir nóttu. Ef ekkert óvænt kemur upp á ætti rafmagn að vera komið á allan bæinn aftur um kl. 06.. Rafvirkjar HS frá Suðurnesjum, Hafnarfirði og Selfossi munu aðstoða rafvirkja HS í Eyjum við þessa spennubreytingu.

Að breyta spennu úr 6,3 í 11 kV hefur engin áhrif á heimili og fyrirtæki í bænum og þarf ekki að gera neinar ráðstafanir vegna þessa. Enginn kostnaður er fyrir heimili og fyrirtæki vegan þessarar breytingar. Breytingin mun fyrst og fremst skila sér í því að mun meiri orku er hægt að flytja um núverandi strengi en áður var, einnig mun afhendingaröryggi aukast.

Fréttatilkynning frá HS:

http://www.hs.is/default.asp?WMFN=WebCmNewsArticle&WMFT=O&NEWSID=621