Fara í efni
13.02.2018 Fréttir

Ráðning á iðjuþjálfa í öldrunarþjónustu

Deildu
Hrefna Óskarsdóttir hefur verið ráðin sem iðjuþjálfi í 50 % stöðu í öldrunarþjónustu Vestmannaeyjabæjar. Iðjuþjálfi verður með aðstöðu á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Hraunbúðum og sinnir meginhluta starfsins þar.  Hrefna lauk námi í iðjuþjálfun frá Háskólanum á Akureyri árið 2009 og er að ljúka meistaranámi í geðheilbrigðisfræðum frá sama skóla.  Vestmannaeyjabær býður Hrefnu velkoma til starfa.