Á bæjarstjórnarfundi í gær var samþykkt persónuverndaryfirlýsing en þar má sjá hvaða persónuupplýsingum Vestmannaeyjabær safnar um einstaklinga og í hvaða tilgangi. Þá má finna upplýsingar um aðra viðtakendur upplýsinganna og hvað þær eru geymdar lengi. Auk þess má finna upplýsingar um á hvaða grundvelli sveitarfélagið safnar persónuupplýsingum, hvaða réttinda einstaklingar njóta og fleiri mikilvægar upplýsingar sem tengjast lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.
Persónuverndaryfirlýsinguna má finna á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar en þar er auk þess að finna nýsamþykkta innri persónuverndarstefnu Vestmannaeyjabæjar.
Persónuverndaryfirlýsinguna má finna á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar en þar er auk þess að finna nýsamþykkta innri persónuverndarstefnu Vestmannaeyjabæjar.