Myndræna boðskiptakerfið PECS (Picture Exchange Communication System) er boðskiptaleið fyrir börn (og fólk á öllum aldri) með einhverfu og þá sem hafa lítið eða ekkert talmál til að tjá sig.
Aðaláherslan í PECS er að þjálfa frumkvæði til að hafa boðskipti við aðra. Sá sem notar PECS lærir að nota mynd til þess að biðja um hlut/athöfn og annað sem hann hefur þörf á að tjá sig um.
Megin áhersla verður lögð á að þátttakendur læri innlögn og þjálfun á fyrstu þremur stigum PECS. Auk þess verða kynntar ýmsar leiðir til að þjálfa aukna færni hjá þeim sem nota PECS til boðskipta, og skrá framvindu og meta árangur þjálfunarinnar.
Kennslan fer fram með fyrirlestri, umræðum og sýnikennslu. Sýnd verða dæmi um PECS þjálfun á myndböndum og þátttakendur fá tækifæri til að æfa grunnatriðin í þjálfunartækninni
Sigrún Kristjánsdóttir þroskaþjálfi og ráðgjafi hefur umsjón með námskeiðinu.
Þátttökugjald er 17.000
Gjald fyrir hvert foreldri er 12.000
Athugið að hægt er að sækja um styrk fyrir námskeiðinu hjá mörgum stéttarfélögum.
Þeir sem hafa hug á að sækja námskeiðið þurfa að skrá sig með því að senda töluvpóst á diddakr@internet.is fyrir föstudaginn 3.febrúar
