Félagsleg liðveisla - hlutastarf með börnum, unglingum og/eða fullorðnum.
Félagsleg liðveisla er persónulegur stuðningur og aðstoð sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangrun. Störf í félagslegri liðveislu geta hentað fólki á öllum aldri. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Vestmannaeyja (STAVEY).
Stuðningsfjölskyldur - 3 sólarhringar í mánuði.
Hlutverk stuðningsfjölskyldu er að taka fatlað barn í umsjá sína í skamman tíma í þeim tilgangi að létta álagi af fjölskyldu þess. Um er að ræða verktakagreiðslur.
Umsóknareyðublöð má nálgast í afgreiðslu Ráðhússins eða á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar, vestmannaeyjar.is, undir auglýsingar og umsóknir. Umsóknarfrestur er til 24.01. 2008. Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar.
Frekari upplýsingar um félagslega- og frekari liðveislu gefur Jóhanna Hauksdóttir ráðgjafarþroskaþjálfi í síma 488-2000.
Frekari upplýsingar um stuðningsfjölskyldur gefur Guðbjörg Guðmundsdóttir ráðgjafarþroskaþjálfi í síma 488-2000.