Á fundinum verður farið yfir hvernig dýpkun hafnarinnar hefur gengið síðustu ár í samanburði við nýliðinn vetur, auk þess sem kynntar verða frumniðurstöður úr rannsóknarverkefni danskra sérfræðinga hjá DHI A/S (Danska straumfræðistofunni).
Vinna DHI A/S hófst haustið 2024 með það að markmiði að finna leiðir til að auka nýtingu Landeyjahafnar. Fyrsta skref verkefnisins var að setja upp sandburðarlíkan sem byggir á 15 ára gagnasafni. Líkanið hefur nú verið fullkvarðað og hefur verið nýtt til að greina mögulegar breytingar á höfninni og umhverfi hennar.
Á fundinum verða kynntar frumniðurstöður þessara rannsókna ásamt hugmyndum Vegagerðarinnar um næstu skref í þróun og uppbyggingu hafnarinnar.
DHI A/S hefur unnið að rannsóknum víða á Íslandi í samstarfi við Vegagerðina, bæði í Landeyjahöfn og á öðrum stöðum, og býr yfir víðtækri reynslu og þekkingu á sviði straumfræði og strandsvæða.
Dagskrá fundarins
Fundarstjóri verður G. Pétur Matthíasson.
- Ávarp: Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra
- Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar
- Fannar Gíslason, forstöðumaður hafnadeildar Vegagerðarinnar
- Kjartan Elíasson, sérfræðingur á hafnadeild Vegagerðarinnar
Að erindum loknum verður opnað fyrir spurningar úr sal þar sem fyrirlesarar svara, auk þess sem ráðherra tekur þátt í umræðum.
Allir áhugasamir eru hvattir til að mæta og taka þátt í samtalinu um framtíð og þróun Landeyjahafnar.