Fara í efni
30.04.2026 Fréttir

Opið samtal Eyjamanna við stjórnvöld um samgöngumál

Deildu

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti samhljóða á bæjarstjórnarfundi í gær að boða til opins fundar um alvarlegt ástand í samgöngumálum Eyjamanna sem hefur varað undanfarna mánuði. Fundurinn er liður í því að skapa vettvang fyrir opið og uppbyggilegt samtal við stjórnvöld um stöðu mála, ábyrgð og framtíðarlausnir. 

Bæjarstjórn telur brýnt að ræða þessi mál opinskátt við stjórnvöld og áréttar að þeim beri lagaskylda til að tryggja Vestmannaeyingum nothæfar og öruggar samgöngur til jafns við aðra landsmenn. 

Til fundarins hafa eftirtaldir verið boðaðir: 

  • Innviðaráðherra 

  • Formenn stjórnmálaflokka 

  • Fulltrúar umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis 

  • Þingmenn Suðurkjördæmis 

  • Vegamálastjóri 

Beðið er svara um mætingu en áætlað er að fundurinn fari fram í Höllinni mánudaginn 4. maí kl. 17:30