Fara í efni
05.02.2026 Auglýsingar

Opið hús í Tónlistaskólanum föstudaginn 6. febrúar

Í tilefni af degi Tónlistarskólanna verðum við með opið hús í Tónlistarskólanum föstudaginn 6.febrúar frá kl.16:00-18:00

Deildu

Þar gefst gestum og gangandi færi á að kynna sér starf skólans, ræða við starfsfólk og prófa hljóðfærin. Ýmsar tónlistaruppákomur verða í skólanum, svo sem opin lúðrasveitaræfing og alls kyns tónlistaratriði.

Heitt verður á könnunni og eitthvað kruðerí með sopanum.

Allir eru velkomnir og tilvalið að nýta tækifærið og kynna sér starf skólans.