Bæjarbúar eru hvattir til að virða fjöldatakmarkanir og sóttvarnir, og vinsamlegast safnist ekki saman í hópum til að fylgjast með.
Á ÍBV sport er farið aðeins yfir sögu þrettándans í Eyjum Þrettándagleði hefur verið haldin í Eyjum óslitið frá árinu 1948. Um 200 manns koma að hátíðinni þar sem Grýla, Leppalúði, jólasveinar, tröll, álfar og aðrar kynjaverur kveðja jólahátíðina með Eyjamönnum og gestum þeirra.
Knattspyrnufélagið Týr tók við þrettándagleðinni í Eyjum árið 1948. Frá því að félögin Týr og Þór voru sameinuð undir merkjum ÍBV 1997 hefur íþróttafélagið haldið hátíðina. Kynslóð fram af kynslóð hafa Eyjamenn haldið þréttándahátíðinni gangandi. Nokkrir hópar koma að skipulagi og framkvæmd hátíðarinnar, má þar nefna blysgöngu jólasveina, gerð trölla og flugeldasýningar. Hátíðin er magnað sjónarspil og hvílir yfir henni mikil dulúð.
Hægt er að skoða myndir af hátíðinni á facebooksíðu þrettándans hér.
