Fara í efni
17.04.2026 Tilkynningar

Óboðlegt ástand sem ríkið verður að bregðast við

Staðan í samgöngum við Eyjar

Deildu

Bæjarstjóri sendi erindi fyrir hönd bæjarráðs til innviðaráðherra og vegamálastjóra ásamt formönnum ríkisstjórnarflokkanna síðastliðinn miðvikudag og fylgdi því eftir samdægurs með samtali við ráðherra og vegamálastjóra.  Erindið var eftirfarandi:

Það stefnir í neyðarástand í samgöngum við Vestmannaeyjar.

 Það er komið miður apríl - Landeyjahöfn er enn lokuð og ekkert gengur við dýpkun. Nýjasta mælingin sýnir afleita stöðu í höfninni og marga dýpkunardaga þarf til að opna. Í þeim dýpkunarglugga sem var að ljúka gat  Álfsnesið ekkert gert í hafnarmynninu og eru þeir farnir í Þorlákshöfn. Þeir treystu sér ekki til að vinna vegna stöðunnar í höfninni og ráða illa við verkefnið. Það er ekki útlit fyrir að þeir geti opnað höfnina á næstunni samkvæmt upplýsingum frá hafnardeild Vegagerðarinnar.

 Herjólfur er bilaður – gengur bara á annarri skrúfunni og er mun lengur á leiðinni til Þorlákshafnar en venjulega, allt að 4 tíma.  Haffæri er takmörkunum háð vegna bilunarinnar og skipið gæti verið kyrrsett í vondum veðuraðstæðum.

 Samgöngurnar eru því mjög brothættar og er ástandið óvenju slæmt núna því höfnin hefur ekki opnað svona seint frá árinu 2019 þegar nýi Herjólfur hóf siglingar.

 Þetta þýðir stórlega skertar sjósamgöngur. Í stað 7 ferða eru 2 ferðir á dag, stöðugir biðlistar fyrir bíla og í svefnrými og mjög löng sigling. Frá áramótum hefur Herjólfur siglt  73 dag í Þorlákshöfn sem þýðir um 146 ferðir í stað 511 ferða. Þetta skerðir verulega alla flutninga sem atvinnulífið treystir á og hefur í raun sett þá í uppnám. Þetta hefur áhrif á hagkerfið mun víðar en bara í Eyjum.

Ferðaþjónustan hefur einnig fengið skell enda höfnin venjulega opin á þessum árstíma. Hver dagur er mjög þungur og ástandið að verða óbærilegt.

 Við þessu þarf að bregðast strax og óskar Vestmannaeyjabær eru eftirfarandi :

 -Að Vegagerðin kanni nú þegar hvort Jan de Nul geti komið fyrr en gert var ráð fyrir og að þeir opni höfnina. Þeir hafa verið úrræðagóðir þegar staðan er erfið og eru með miklu öflugri búnað en sá aðili sem nú sér um dýpkun. Það þarf öflugra dýpkunarskip til að opna höfnina.

 -Flugdögum verði fjölgað á meðan siglt er í Þorlákshöfn.

 -Lögð verði fram áætlun um það hvernig á að bregðast við ef Herjólfur lV getur ekki siglt vegna viðgerða eða bilunar. Baldur dugar ekki í þeirri stöðu sem er í dag.

 Við óskum eftir fundi við fyrsta tækifæri til fylgja þessu erindi eftir.

 

Bæjarráð hittist á undirbúningsfundi í dag, föstudag, þar sem samgöngumálin voru rædd og mikilvægi þess að brugðist verði strax við því ástandi sem er við dýpkun á höfninni. 

Ekki hefur enn borist formlegt svar við erindinu, sem hefur verið ítrekað, en bæjarráð mun funda með vegamálastjóra og fulltrúum Vegagerðarinnar vegna stöðunnar í Landeyjahöfn á mánudag í tengslum við fund bæjarráðs.