Markmið með nýtingu svæðisins er að skapa íbúðabyggð þar sem lögð er áhersla á fjölbreytt form húsnæðisgerðar sem hentar fjölbreyttum hóp íbúa. Lögð er áhersla á að landsvæðið sé vel nýtt fyrir húsnæði og dvalarsvæði. Gert er ráð fyrir blandaðri tegund íbúðarhúsnæðis, einbýlis, raðhúsa og fjölbýlis. Einnig er lögð áhersla á fjölbreytta stærð og herbergjafjölda íbúða. Við mótun tillögunnar verður horft til þess að bjóða uppá hagkvæma íbúðarkosti fyrir efnaminni kaupendur og leigjendur. Að lokum er lögð áhersla á eldri íbúa sem eru hugsanlega að minnka við sig.
Gert er ráð fyrir 6-10 deilda leikskóla á svæðinu og að sérstaklega sé hugað að skjóli á lóð og góðri aðkomu að leikskólanum. Svæðið í Löngulág verður áfram sameiginlegt dvalarsvæði en áform eru um að bæta skipulag svæðisins og nýta það betur. Einnig verða skjólgóð dvalarsvæði innan íbúðarsvæðisins.
Áhersla er lögð á mannvænt umhverfi, með því er t.d. átt við aðlaðandi form, efnis- og litaval byggðar, skjólsæld innan hverfisins og við innganga bygginga, öruggar gönguleiðir, takmarkaða umferð, ljósgæði, persónuleg útisvæði fyrir íbúðir, gróður, áningarstaði og leiksvæði. Áhersla er lögð á fjölbreytta húsagerð með spennandi, grænum og skjólgóðum almenningsrýmum sem og persónulegum dvalarrýmum utanhúss, s.s. skjólgóðum görðum og svölum.
Markmið Vestmannaeyjabæjar er að byggð á umræddu svæði myndi samfellt og eðlilegt framhald á aðlægum reitum og bjóði uppá eftirsótta búsetukosti og umhverfisgæði fyrir íbúa.
Með þessu er Vestmananeyjabær að bregðast við aukinni þörf fyrir íbúðarhúsnæði í Vestmannaeyjum og skapa aðlaðandi og fjölbreytt búsetuskilyrði til framtíðar.



