Fara í efni
04.07.2024 Fréttir

Nýr umsjónarmaður Frístundar

Sigurleif Kristmannsdóttir hefur verið ráðin sem nýr umsjónarmaður Frístundar í GRV Hamarskóla.

Deildu

Sigurleif er menntuð sem tómstunda- og félagsmálafræðingur og hefur starfað í nokkur ár sem frístundaleiðbeinandi og aðstoðarforstöðumaður á frístundaheimili. Sigurleif hefur þegar hafið störf og sér um Sumarfjörið í sumar þar sem mörg ævintýri bíða krakkanna.