Möstrin eru nú öll risin og sjálfur ljósabúnaðurinn er kominn upp og í virkni. Þetta er stórt skref í uppbyggingu íþróttamannvirkja í sveitarfélaginu.
Enn stendur þó yfir lokafrágangur og þá á sérstaklega eftir að ljúka jarðvegsfrágangi við möstrin sjálf, ásamt því að koma fyrir ljósastýringu (dimmer) fyrir búnaðinn.
Áætlað er að búnaðurinn fyrir ljósastýringuna komi til okkar í október og þá verður verkinu að fullu lokið. Þangað til stýringin kemur er eingöngu hægt að kveikja á ljósunum á fullum styrk.
Þegar búnaðurinn verður kominn í fulla virkni verður hægt að stilla lýsinguna eftir þörfum:
500 LUX (Fullur styrkur): Ætlað fyrir keppnisleiki í sjónvarpi. (Þetta er eina stillingin sem er virk fram í október).
300 LUX: Keppnislýsing fyrir leiki í meistaraflokki.
200 LUX: Æfingarlýsing fyrir hefðbundnar æfingar og keppnislýsing fyrir yngri flokka.
Að öllum framkvæmdum loknum er ætlunin að halda formlega vígslu á flóðljósunum til að fagna þessum áfanga með bæjarbúum. Stefnt er að því að vígslan fari fram í október og verður hún auglýst nánar á miðlum sveitarfélagsins þegar nær dregur.
Við hlökkum til að sjá völlinn lýsast upp í vetrarmyrkrinu og bjóða iðkendur velkomna undir nýjum flóðljósum!




