NOV, framleiðandi NSL-4 almannavarnavatnsleiðslunnar, hefur nú afhent lögnina. Subsea 7, sem annast flutning og útlagningu hennar, tók við endastykki lagnarinnar á mánudag.
Vel hefur gengið að spóla vatnsleiðslunni inn á tromlu og er gert ráð fyrir að þeirri vinnu ljúki á fimmtudag. Að því loknu tekur við 4 til 5 daga sigling til Vestmannaeyja.
Þegar skipið kemur til Eyja hefst lokaáfanginn, útlagning almannavarnavatnsleiðslunnar frá landi til Vestmannaeyja. Þetta markar mikilvæg tímamót í verkefninu og skref nær því að tryggja öruggari vatnsöflun fyrir samfélagið í Vestmannaeyjum.


