Samkvæmt skilmálum valferlisins höfðu áhugasamir aðilar tækifæri til að bera fram fyrirspurnir og óska eftir breytingum á einstökum þáttum þess. Á tilboðstíma bárust tvær fyrirspurnir þar sem óskað var bæði skýringa og breytinga á skilmálum valferlisins, og var fallist á breytingarbeiðnir.
Að loknum tilboðstíma bárust tvö tilboð, annars vegar frá Laugum ehf. og hins vegar frá Sporthöllinni ehf. Að lokinni yfirferð og mati á grundvelli valforsendna útboðsgagna var það niðurstaða að tilboð Lauga ehf. væri hagkvæmast.
Vestmannaeyjabær gat ekki tjáð sig opinberlega um efni skilmála á meðan valferlið stóð yfir, enda ber samkvæmt meginreglum laga um opinber innkaup að tryggja jafnræði og gagnsæi við upplýsingagjöf. Nauðsynlegt er að allir áhugasamir aðilar, hvort sem þeir eru innlendir eða erlendir, hafi aðgang að sömu upplýsingum á sama tíma.
Kæra vegna skilmála valferlisins hefur verið lögð fram og er nú til meðferðar hjá kærunefnd útboðsmála. Vegna þessa mun Vestmannaeyjabær ekki tjá sig frekar um efni málsins á meðan það er til úrlausnar hjá nefndinni.
Vestmannaeyjabær mun fara ítarlega yfir málið og veita frekari upplýsingar þegar niðurstaða kærunefndar liggur fyrir.
