Í dag fór hópur nemenda og tók við veglegri gjöf frá dagdvölinni, en fólkið þar hefur saumað poka með útsaumi á og fyllt þá af heimaprjónuðum vettlingum.
Hún Ragnheiður afhenti okkur einn poka fyrir hverja deild, flokkað eftir stærð.
Við þökkum Hraunbúðum kærlega fyrir rausnarlega gjöf sem mun nýtast vel í vetur.
