Fara í efni
06.03.2026 Fréttir

Nemendur GRV sýndu glæsilega hönnun á undankeppni Stíls

Í vikunni var undankeppni Stíls haldin á sviði Leikfélags Vestmannaeyja.

Deildu

Stíll er samstarfsverkefni Grunnskóla Vestmannaeyja og Féló. Þar sýndu nemendur í 8.-10.  bekk afrakstur vetrarins úr Stíls vali í GRV þar sem þau hafa unnið að hönnun fatnaðar, hárs og förðunar. 

Þemað í ár er á "Tímum Viktoríu" og er greinilegt að allir hópar hafa lagt mikla vinnu á sig í vetur til að gera heildarútlitið sem allra glæsilegast. 

Stíll er hönnunarkeppni á vegum Samfés og getur hver félagsmiðstöð sent eitt keppnislið í lokakeppnina sem fram fer laugardaginn 14. mars í Digranesi í Kópavogi. 

Í ár voru það Aþena, Elísabet og Júlí sem valdar voru að taka þátt fyrir hönd Féló í lokakeppni Stíls. En einnig fengu Emma, Mía Bjarný og Ronja viðurkenningu fyrir möppuna sína. 

Sérstakar þakkir fá Lára Skæringsdóttir og María Erna Jóhannesdóttir fyrir að leiðbeina með hár og förðun, Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri fyrir að afhenda viðurkenningar og Hrafnkell Darri Steinsson fyrir að kynna atriðin á sviðinu. 

Framtíðin er svo sannarlega björt!