Vestmannaeyjabær vinnur nú að gerð atvinnustefnu sem ætlað er að styðja við öflugt og fjölbreytt atvinnulíf, áframhaldandi uppbyggingu og góð lífsgæði í Vestmannaeyjum.
Sjónarmið íbúa, atvinnurekenda og annarra sem tengjast samfélaginu skipta miklu máli. Því leggur Vestmannaeyjabær áherslu á víðtækt samráð við mótun stefnunnar og er rafræn könnun liður í því ferli.
Könnunin er nafnlaus og tekur aðeins nokkrar mínútur að svara.
Öll sjónarmið skipta máli og þátttaka sem flestra er mikilvæg fyrir mótun atvinnustefnunnar. Frestur til að svara er til og með 20. október nk.
Taktu þátt í könnuninni hér: Atvinnustefna Vestmannaeyjabæjar - Könnun
