Fara í efni
08.10.2026 Fréttir

Mistök við útlagningu ollu því að tjón varð á almannavarnalögninni NSL-4

Á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja þann 6. október var fjallað um útlagningu almannavarnalagnarinnar NSL-4 og tjón sem varð á lögninni við framkvæmdina.

Deildu

Stýrihópur um vatnslagnir fundaði með forsvarsmönnum Subsea7, fulltrúa Verkís og lögmanni sveitarfélagsins mánudaginn 5. október. Á fundinum var farið yfir skýrslu Subsea7 um tjónið sem varð á almannavarnalögninni við útlagningu hennar.

Í skýrslunni kemur fram viðurkenning Subsea7 á því að tjónið megi rekja til mistaka við framkvæmd útlagningarinnar. Þar kemur jafnframt fram að ferlar um borð hafi ekki tryggt að útlagningin héldist innan öryggismarka.

Eyþór Harðarson formaður bæjarráðs segir mjög mikilvægt að vinna málið vel ,  sem betur fer vorum við með bestu mögulegar tryggingar vegna verkefnisins og nú fara næstu vikur í að vinna mat á tjóninu og koma verkefninu í þann farveg sem upphaflega var lagt af stað með.