Fara í efni
13.03.2026 Fréttir

Mikilvæg þjónusta í 40 ár

Deildu

Aníta Sif Vignisdóttir snyrti- og fótaaðgerðarfræðingur líkur störfum við fótaaðgerðir á Hraunbúðum eftir 40 ára starf. Ófáir eldri borgarar hafa nýtt sér þessa mikilvæga þjónustu sem Aníta hefur sinnt af kostgæfni og alúð. Það eru ekki allir sem gera sér grein fyrir mikilvægi fótaaðgerða og hvað þá fyrir eldri borgara. Fótaaðgerðarfræðingar tilheyra heilbrigðisstéttum og því er fótaaðgerð heilbrigðisþjónusta. Vestmannaeyjabær þakkar Anítu kærlega fyrir hennar mikilvæga framlag til þjónustu við eldri borgara. Fótaaðgerðir á Hraunbúðum mun ekki leggjast af heldur mun Valgerður Jóna Jónsdóttir fótaaðgerðarfræðingur taka við verkefni Anítu.