Þegar spurt var hversu ánægðir íbúar væru með þjónustu við barnafjölskyldur í sveitarfélaginu kom í ljós að af þeim sem tóku afstöðu sögðust 83% ánægð en 17% óánægð og eykst ánægjan á milli ára og er yfir landsmeðaltali.
Þegar spurt var hversu ánægðir íbúar væru með þjónustu við fatlað fólk í sveitarfélaginu kom í ljós að af þeim sem afstöðu tóku sögðust 78% vera ánægð en 22% óánægð og eykst ánægjan á milli ára og er yfir landsmeðaltali.
Þegar spurt var hversu ánægðir íbúar væru með þjónustu við eldriborgara í sveitarfélaginu kom í ljós að af þeim sem afstöðu tóku sögðust 76% vera ánægð en 24% óánægð og eykst ánægjan verulega á milli ára og er nokkuð hátt yfir landsmeðaltali.
Hægt er að nálgast nánari niðurstöður hér: Gallup
Í fundargerð ráðsins kemur fram að Fjölskyldu- og tómstundaráð fagni þessum niðurstöðum og telji þær til marks um að vel hafi tekist að bæta þjónustu við mikilvæga þjónustuþega svo sem aldraða, fatlaða og barnafjölskyldur í Vestmannaeyjum. Eftir sem áður telur ráðið enn hægt að gera gott betra og minnir í því samhengi á að innan skamms opnar nýbygging við Hraunbúðir sem bæta mun mikið þjónustu við heimilisfólk sem glímir við heilabilun eins og Alzheimer, hafinn er undirbúningur að nýjum þjónustuíbúðum fyrir aldraða í Eyjahrauni, byrjað er að hanna nýtt sambýli fyrir fatlaða og fjölga sérhæfðum leiguíbúðum fyrir þá svo eitthvað sé nefnt.
Þá óskar Fjölskylduráð starfsmönnum sérstaklega til hamingju með þennan árangur og telur hann vitnisburð um þann metnað sem ríkir meðal starfsmanna sveitarfélagsins.