Mynd hér að neðan sýnir staðsetningu lóðarinnar á deiliskipulags uppdrætti og byggingarreit lóðarinnar.

Mynd 1: Afstöðumynd og snið úr deiliskipulagi.
Við Miðgerði 4 er gert ráð fyrir einbýli, ein hæð eða ein hæð og kjallari. Hámarksbyggingarmagn sé húsið ein hæð er 180 m2 en sé um að ræða eina hæð og kjallara er hámarksbyggingarmagn 280 m2.
Mynd hér að neðan sýnir dæmi um mögulega ásýnd húsa á svæðinu og staðsetningu lóðarinnar. Form húsa á myndinni er einungis dæmi um mögulegt útlit húsa sem rúmast innan deiliskipulagsins.

Mynd 2: Dæmi um mögulega ásýnd. Form húsa er einungis dæmi um mögulegt útlit.
Verð fyrir lóðina er 1.600.000 kr.
Einungis er um að ræða byggingarétt. Önnur gjöld eins og tengigjöld, gatnagerðargjöld, eftirlitsgjöld, eða annað sem almennt fellur til við úthlutun lóða og byggingarleyfis, eru ekki innifalin í tillögunum.
Lóðarverð og 50% gatnagerðargjalda greiðist innan 30 daga frá úthlutun lóða.
Lóðir og byggingarreitir eru sýndar á deiliskipulagsuppdrætti. Umsækjendum er bent á að kynna sér vel skilmála í greinargerð deiliskipulagsins. Vakin er athygli á nýjum vinnureglum við lóðaúthlutun hjá Vestmannaeyjabæ.
Sótt er um lóðina í gegnum íbúagátt á vefsíðu Vestmannaeyja.
Gögn með umsókn:
Um auglýsingu og úthlutun lóða gilda vinnureglur um úthlutun lóða í Vestmannaeyjum. Í reglunum eru tilgreindar kröfur til umsækjenda.
Skipulags- og byggingarskilmála má finna í viðhengi “deiliskipulagsuppdráttur” hér að neðan.
Lóðirnar eru afhentar í núverandi ásigkomulagi. Frágangur gatna mun fara fram samhliða uppbyggingu á lóðum.
Umsóknarfrestur er til og með 11. mars 2026.
Vinnureglur vegna úthlutunar byggingarlóð
Greinagerð deiliskipulags
Greinagerð deiliskipulags- skýringarmyndir