Fara í efni
09.02.2014 Fréttir

Menningarhúsið Kvika- hönnun merkis/lógó.

Stýrihópur um stofnun menningarhúss auglýsir eftir hugmyndum að merki / lógói við nýtt nafn hússins.  Húsið, sem er gamla Félagsheimilð við Heiðarveg, hefur fengið nafnið „Menningarhúsið Kvika“ og mun það þjóna hlutverki miðstöðvar fyrir menningar- og listviðburði í bænum.

 

Deildu
Með nafninu er vísað í eftirtaldar merkingar orðsins:
1. Uppsprettulind
2. Hafið - Öldurót, brotsjór, undiralda, bylgja
3. Bergkvika – Bráðið berg, eldgos
Hugmyndir óskast sendar inn rafrænt á tölvupóstfangið menningarhus@vestmannaeyjar.is.  Einnig er hægt að skila teiknuðum hugmyndum í afgreiðslu Ráðhúss Vestmannaeyja merkt „Stýrihópur um stofnun menningarhúss – LOGO“
Verðlaun verða veitt fyrir valið merki við formlega opnun hússins í byrjun apríl.
Skilafrestur er til 14. Mars 2014