Við vitum öll að árangur verður ekki til úr engu. Á bakvið hann eru þrotlausar æfingar, skipulagning, tækni, úthald, kökubasarar og margskonar framlag hjá öllum sem að koma. Við hjá Vestmannaeyjabæ erum stolt af íþróttafólkinu okkar, stuðningnum við þau og þeirri aðstöðu sem íbúar hafa í sameiningu lagt þeim til.
Að frumkvæði landsliðsþjálfara okkar, Heimis Hallgrímssonar, sem oft þarf að svara spurningum um afhverju íþróttafólkið okkar nái svona miklum árangri létum við taka saman myndband sem sýnir brot af þeirri aðstöðu sem íþróttafólk í Vestmannaeyjum nýtir til að efla sig og ná árangri.