Fara í efni
22.03.2006 Fréttir

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Vestmannaeyjum árið 2006

Í Félagsheimilinu við Heiðarveg þriðjudaginn 28. mars kl. 15. Nemendur 7. bekkja í grunnskólunum í Eyjum hafa unnið að undirbúningi lokahátíðarinnar frá því í haust. Þeir hafa æft upplestur undir stjórn kennara sinna og munu sex nemendur úr
Deildu

Í Félagsheimilinu við Heiðarveg þriðjudaginn 28. mars kl. 15.

Nemendur 7. bekkja í grunnskólunum í Eyjum hafa unnið að undirbúningi lokahátíðarinnar frá því í haust. Þeir hafa æft upplestur undir stjórn kennara sinna og munu sex nemendur úr hvorum skóla taka þátt í lokahátíðinni. Þeir munu lesa upp úr verkum þekktra íslenskra höfunda, bæði bókmenntatexta og ljóð.

Bæjarbúar eru eindregið hvattir til að fjölmenna á lokahátíðina, því hér er um að ræða ánægjulegan viðburð þar sem ungt fólk kemur fram og sýnir á sér sínar bestu hliðar í framkomu, upplestri og framsögn.

Fræðslu- og menningarsvið

Vestmannaeyja