Í tilefni af Barnamenningardögum á Suðurlandi er börnum og ungmennum boðið að taka þátt í ljósmyndakeppni þar sem þau fá tækifæri til að sýna sitt sjónarhorn á heiminn í kringum sig. Keppnin fer fram í flestum sveitarfélögum á Suðurlandi og verður valin dómnefnd sem velur bestu myndirnar í hverju sveitarfélagi og veitir verðlaun. Þrjár efstu myndirnar fara áfram í sameiginlega stafræna ljósmyndasýningu undir yfirskriftinni „Suðurland með augum barna“, þar sem myndir barna alls staðar af Suðurlandi verða sýndar saman.
Markmið keppninnar er að gefa börnum vettvang til að tjá sig í gegnum ljósmyndun og sýna hvernig þau upplifa sitt umhverfi, samfélag og náttúru!


