Fara í efni
10.03.2020 Fréttir

Ljósin tendruð á jólatré

Föstudaginn 29. nóvember kl. 17:00 verða ljósin kveikt á jólatrénu á Stakkagerðistúni. 

Deildu
Stakkagerðistún Stakkó

Lúðrasveitin leikur létt jólalög og börn af Víkinni–5 ára deild syngja.

Helga Jóhanna Harðardóttir formaður fjölskyldu- og tómstundaráðs og Guðmundur Örn Jónsson sóknarprestur segja nokkur orð.

Lína Langsokkur verður á staðnum og jólasveinar færa börnum góðgæti.

Ef veður verður óhagstætt verður viðburðinum frestað og mun slík tilkynning birtast á facebook síðu Vestmannaeyjabæjar og á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar.