Fara í efni
04.07.2019 Fréttir

Litla hafmeyjan - Skanssvæðinu

Deildu
Vakin er athygli á sýningu Leikhópsins Lottu á Litlu hafmeyjunni á morgun, föstudaginn 5. júlí, kl. 15:30 á Skanssvæðinu. Sýningin er í boði Ísfélagsins. Um er að ræða frábæra leiksýningu sem hefur notið vinsælda um land allt. 
 
ATH: Sýningin verður á Skanssvæðinu og í beinu framhaldi hefst 100 ára afmælishátíð Vestmannaeyjabæjar og setning Goslokahátíðar á svæðinu. Tónlist, Cirkus Flik Flak og sala varnings. Það er því nóg um að vera fyrir börn jafnt sem fullorðna.
 
Þar sem takmörkuð bílastæði eru við Skanssvæðið er fólki bent á að leggja við FES og ganga meðfram húsunum yfir á Skanssvæðið.