Lista- og menningarfélag Vestmannaeyja var stofnað 2. mars 2019 og er tilgangur félagsins að sameina, efla og virkja listsköpun og gera listsköpun einstaklinga sýnilegri í samfélaginu, bæði í Vestmannaeyjum sem og á fastalandinu.
Þann 1. október 2019 fékk félagið aðstöðu í Hvíta húsinu við Strandveg 50 og eru 67 listamenn í félaginu. Í byrjun var hluta þriðju hæð hússins úthlutað til félagsins en fljótlega varð ljóst að töluvert meiri eftirspurn var eftir vinnustofum fyrir listafólk í Vestmannaeyjum. Í dag eru leigðar út 33 vinnustofur hjá félaginu ýmist til einstaklinga í sér rými eða í sameiginlegu rými.
Félagið hefur staðið fyrir fjölda sýninga einstaklinga auk samsýninga og hefur auk þess staðið fyrir námskeiðahaldi fyrir nemendur Grunnskóla Vestmannaeyja á smiðjudögum undanfarin tvö ár og hefur verkefnið tekist vel. Þá hafa félagar í félaginu staðið fyrir sumarnámskeiðum fyrir börn og ungmenni.
Á athöfninni fluttu Heiðmar Magnússon og Magdalena Jónasdóttir ljóð og skólalúðrasveit Vesmannaeyja spilaði nokkur lög.
Til hamingju félagar í Lista- og menningarfélaginu með valið.
Fyrir hönd Vestmannaeyjabæjar óska ég bæjarbúum öllum gleðilegs sumars.
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri
