Fara í efni
12.06.2026 Tilkynningar

Lína Katrín ráðin deildarstjóri launadeildar

Vestmannaeyjabær auglýsti eftir deildarstjóra launadeildar í maí og hefur tekið ákvörðun um að ráða Línu Katrínu Þórðardóttur í starfið.

Deildu

Lína Katrín hefur lokið BA prófi í viðskiptafræðum og er viðurkenndur bókari að mennt. Lína Katrín hefur starfað undanfarin ár hjá Beluga Whale Sanctuary, Sealife Trust við fjármálastjórnun og  mannauðs-, launa- og verkefnastjórnun. Hún hefur einnig reynslu af þjónustu við skrifstofustörf og móttöku.  Lína Katrín hefur með starfsreynslu sinni verið í teymisvinnu verkefna og í farsælum samskiptum við ólíka hópa,  opinberar stofnanir og aðra hagsmunaaðila.

Fimm umsóknir bárust um starfið.

Vestmannaeyjabær býður Línu Katrínu velkomna og hlakkar til samstarfsins.