Í tilefni af degi íslenskrar tungu sem var þann 16. nóvember síðastliðin vorum við í Kirkjugerði með lestrarátak fyrir alla nemendur skólans.
Lestrarátakið stóð yfir í tvær vikur, 1.-16. nóvember, foreldrar fengu bein með sér heim þar sem þau skrá niður nafn barns, titil bókar og fjölda lesinna blaðsíðna.
Þátttakan var mjög góð og niðurstöðurnar eru þær að nemendur Kirkjugerðis og fjölskyldur þeirra lásu 893 bækur sem gerðu 21.949 bls., síðastliðnar tvær vikur.
Dagur íslenskrar tungu er einnig afmælisdagur Lubba.
Lubbi finnur málbein er íslenskt málörvunarverkefni þar sem börnin kynnast íslensku málhljóðunum með aðstoð Lubba íslensks fjárhunds.
Í verkefninu fléttast saman söngur, hreyfingar, myndir, orð og lestur. Markmiðið er að efla hljóðavitund og orðaforða nemenda sem og að leggja grunn að lestrarnámi.



