Fimmtudaginn 8. mars n.k. verður nýr leikskóli, Leikskólinn Sóli að Ásavegi 11, Vestmannaeyjum vígður og tekinn formlega í notkun.
Formleg vígsla fer fram frá kl. 16:00-17:00 en frá kl. 17:00-19:00 verður leikskólinn til sýnis fyrir bæjarbúa.
Er þetta í fyrsta sinn sem Vestmannaeyjabær stendur að byggingu nýs leikskóla en þeir leikskólar sem fyrir voru í Eyjum voru reistir fyrir gjafafé, þ.e. annars vegar Kirkjugerði og hins vegar Rauðagerði sem lokað var 1. mars og svo "gamli? Sóli sem rekinn var í gömlu íbúðarhúsi.
Þegar verkið var boðið út, bárust þrjú tilboð í verkið og þegar þau voru opnuð 18. nóv. 2005, kom í ljós að fyrirtækið 2Þ ehf. var með lægsta tilboðið (92% af kostnaðaráætlun)og var því tilboði tekið. Hönnun leikskólans var í höndum THG, Teiknistofu Halldórs Guðmundssonar.
Fyrsta skóflustungan að nýjum leikskóla var tekin 26.nóvember 2005.
Það er fyrirtækið Fasteign sem fjármagnaði bygginguna en Vestmannaeyjabær leigir húsnæðið af þeim.
Leikskólinn var afhentur börnum og starfsfólki 1. mars sl. og hófst starfssemin þann dag. Þann dag var langþráðum áfanga náð en biðin eftir nýjum skóla hefur staðið yfir um árabil.
Sama dag og skólinn tók til starfa var tveimur leikskólum lokað. Þetta eru leikskólarnir Rauðagerði við Boðaslóð, en hann hefur starfað síðan árið 1974 og var reistur fyrir gjafafé frá velunnurum í Sviss og sænska Rauða krossinum og gamla Sóla sem hefur verið starfræktur í yfir 45 ár, en hann tók til starfa 12. mars 1960. Bíður sú bygging niðurrifs.
Nýi Sóli á að rúma vel um 100 börn samtímis og eru nemendur nú þegar orðnir 99.
Leikskólastjóri hins nýja leikskóla er Helena Jónsdóttir, en hún var áður leikskólastjóri á Rauðagerði.Aðstoðarleikskólastjóri er Júlía Ólafsdóttir.