Fara í efni
04.09.2020 Fréttir

Leikskólinn Kirkjugerði óskar eftir að ráða leikskólakennara, leiðbeinanda

fyrir skólaárið 2020-2021

Deildu

Menntunar- og hæfniskröfur

· Leikskólakennaramenntun, eða önnur menntun sem nýtist í starfi.

· Ábyrgur og jákvæður fagmaður sem á auðvelt með mannleg samskipti

· Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð

· Reynsla af vinnu með börnum æskileg

. Íslenskukunnátta skilyrði.

Ráðningarhlutfall og tími

· Óskað er eftir að viðkomandi hefji störf sem fyrst

· um er að ræða 100% stöðu.

Starfskröfur

Unnið er samkvæmt starfslýsingum Félags leikskólakennara en starfslýsingu leikskólakennara má finna á http://ki.is

Frekari upplýsingar

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags leikskólakennara.

Upplýsingar um starfsemi leikskólans er hægt að nálgast á http://kirkjugerdi.leikskolinn.is/

Starfsmaður þarf að geta hafið störf sem fyrst og því ekki um neinn umsóknarfrest að ræða.

Bent er á að samkvæmt lögum verða umsækjendur að skila sakavottorði.

Umsóknum skal skila á netfangið kirkjug@vestmannaeyjar.is

Upplýsingar gefur Halldóra Björk aðstoðarleikskólastjóri í síma 4882281 einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið halldora@vestmannaeyjar.is

Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um starfið.