Vestmannaeyjar - Fullt starf
Umsóknarfrestur: 11.04.2022
Vestmannaeyjabær leitar nú að metnaðarfullum leiðtoga í stöðu leikskólastjóra við leikskólann Kirkjugerði. Mun viðkomandi gegna lykilhlutverki í því að móta og leiða starf leikskólans með velferð barna að markmiði. Við leitum að aðila sem hefur brennandi áhuga á þeim málaflokki, og hefur bæði menntun og reynslu sem nýtist til þess að skapa framtíðarsýn sem snýr að þeirri vegferð.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
- Vera faglegur leiðtogi og móta framtíðarsýn í samræmi við skólastefnu sveitarfélagsins, aðalnámskrá leikskóla og lög um leikskóla
- Stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi leikskóla
- Bera ábyrgð á starfsmannamálum, s.s. ráðningum, starfsþróun og vinnutilhögun
- Bera ábyrgð á samstarfi við aðila skólasamfélagsins
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leikskólakennaramenntun eða reynsla af kennslu í leikskóla er skilyrði
- Leyfisbréf kennara skilyrði
- Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og/eða uppeldis -, kennslu- og menntunarfræða er kostur
- Reynsla af stjórnun er æskileg
- Góð færni í samskiptum ásamt skipulags- og leiðtogahæfni
- Brennandi áhugi á að efla gæði í leikskólastar
Leikskólinn Kirkjugerði hefur verið starfræktur frá árinu 1974. Í dag eru um 90 börn leikskólanum á fimm deildum og fjöldi starfsfólks er 25 í tæplega 18 stöðugildum. Unnið er eftir leikskólastefnu í anda hugsmíðahyggju en kjarni þeirrar stefnu er viðurkennandi samskipti, sjálfræði, lýðræðisleg vinnubrögð og jafnrétti. Einkunnarorð leikskólans Kirkjugerðis er „Jákvæður agi, gleði og félagsfærni“ og eru þau leiðarljós í öllu starfi hans.
Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá með nöfnum tveggja umsagnaraðila. Einnig skal fylgja greinargerð með rökstuðningi fyrir hæfni í starfið, leyfisbréf til kennslu og staðfesting á viðbótarnámi sé það til staðar. Þeir aðilar sem eru ráðnir á fjölskyldu- og fræðslusvið Vestmannaeyjarbæjar þurfa að veita heimild til að leitað sé upplýsinga úr sakaskrá hjá Ríkissaksóknara.
Vestmannaeyjabæjar hvetur alla áhugasama til þess að sækja um starfið óháð kyni. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ vegna Félags stjórnenda leikskóla.
Nánari upplýsingar veita: Gyða Kristjánsdóttir, gyda@hagvangur.is og Stefanía Hildur Ásmundsdóttir, stefania@hagvangur.is
