Fara í efni
17.07.2023 Fréttir

Leikskólakennari / leiðbeinandi óskast til starfa í Víkina 5 ára deild í GRV

Auglýst er eftir leikskólakennara / leiðbeinanda í Víkina 5 ára deild, GRV. Um er að ræða 50% starf með möguleika á auknu starfshlutfalli frá og með október.

Einnig er óskað eftir starfsmanni í tilfallandi afleysingar.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf 15. ágúst 2023.

Deildu

Meginverkefni

  • Vinnur að uppeldi og menntun barnanna
  • Fylgist vel með velferð þeirra og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar
  • Situr starfsmannafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varðar starfsemi leikskólans
  • Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun æskileg
  • Reynsla af vinnu með börnum æskileg
  • Áhugi á vinnu með börnum nauðsynleg
  • Viðkomandi þarf að vera metnaðarfullur, ábyrgur og áhugasamur, vera jákvæður og lipur í samskiptum og hafa sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Hafa velferð og þroska barna að leiðarljósi
  • Viðkomandi þarf að hafa hreint sakavottorð

Umsóknir berist með tölvupósti til Guðrúnar S. Þorsteinsdóttur aðstoðarleikskólastjóra í Víkinni - 

5 ára deild á netfangið gudrun@grv.is

 Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og leyfisbréf/prófskírteini auk kynningarbréfs þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni í starfið. 

Þeir sem ráðnir eru á leikskólann þurfa að veita heimild til að leitað sé upplýsinga úr sakaskrá hjá ríkissaksóknara.

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ/Drífanda eða Stavey.

Hvatning er til allra áhugasama einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr 150/2020 og lögum um kynrænt sjálfræði nr. 80/2019.

Umsóknarfrestur er til og með 28. júlí 2023. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.