Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ, Drífanda eða Stavey.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Hæfniskröfur:
· Leikskólakennaramenntun æskileg.
· Reynsla af vinnu með börnum æskileg.
· Áhugi á vinnu með börnum nauðsynleg.
· Hæfni í mannlegum samskiptum og samvinnu við annað fólk nauðsynleg.
· Sjálfstæði, stundvísi og skipulögð vinnubrögð.
· Íslenskukunnátta skilyrði.
Umsóknarfrestur er til og með 15. september 2018
Umsóknir berist til Vestmannaeyjabæjar og þeim þarf að fylgja afrit af prófskírteini/leyfisbréfi ef það á við.
Skilyrði fyri ráðningu er hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar veitir Bjarney Magnúsdóttir leikskólastjóri í síma 488-2280, eða tölvupósti; bjarney@vestmannaeyjar.is