Starfið miðar að því að auka færni einstaklinga með fötlun, bæði verklega og félagslega. Mikilvægt er því að umsækjandi hafi til að bera ákveðna færni í mannlegum samskiptum og áhuga á að vinna með fólki. Einhver reynsla í vinnu með fötluðum er æskileg en ekki skilyrði. Stuðningsfulltrúi mun vinna undir handleiðslu og í nánu samstarfi við yfirmann á vinnustaðnum. Nánari upplýsingar um starfið veitir Sveinn í síma 481-2905.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi STAVEY. Umsóknareyðublöð munu liggja frammi í afgreiðslu þjónustuvers Ráðhúss Vestmannaeyja og óskast þeim skilað á sama stað.