Verndaður vinnustaður
Kertaverksmiðjan Heimaey leitar eftir áhugasömum starfsmanni í starf stuðnings-fulltrúa. Starfsmaður vinnur í nánu samstarfi við ráðgjafarþroskaþjálfa og verkstjóra og miðar starfið að því að auka færni einstaklinga með fötlun til að takast á við sem flest störf innan vinnustaðarins. Um er að ræða 100% framtíðarstarf frá 9. ágúst n.k.
Dag- og skammtímavistun Búhamri 17
Óskum eftir fólki sem hefur áhuga á að vinna með börnum og unglingum í störf stuðningsfulltrúa. Megináherslur í starfi í Dag- og skammtímavistun eru að efla sjálfstæði þjónustuþega.
Dagvistin er opin alla virka daga og skammtímavistun (opið allan sólarhringinn) er opin eina viku í hverjum mánuði.
Um er að ræða eina 50% stöðu til langtíma og aðra 50% stöðu í afleysingar. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. september n.k.
Frekari liðveisla
Við leitum að hressu og áhugasömu fólki til starfa við frekari liðveislu til lengri tíma. Verkefni frekari liðveisla er að veita einstaklingum með fötlun sem eru í sjálfstæðri búsetu margháttaða persónulega aðstoð í daglegu lífi, s.s. aðstoð við heimilishald, aðstoð við að sinna persónulegum þörfum og aðstoð við að taka þátt í félagslífi og tómstundum. Um er að ræða 30% starf fyrir hádegi á virkum dögum, 15% starf eftir hádegi og eftir kl. 17.00 á virkum dögum eða um helgar og 15% starf eftir hádegi, eftir kl. 17.00 á virkum dögum og/eða um helgar. Möguleiki er á að sami starfsmaður sinni öllum störfum í 60% starfi.
Félagsleg liðveisla
Við leitum að hressu og áhugasömu fólki til starfa við félagslega liðveislu til lengri tíma. Liðveisla veitir einstaklingum með fötlun persónulegan stuðning og aðstoð til að taka þátt í félags- og tómstundastarfi. Laus eru sjö hlutastörf með fötluðum börnum og fullorðnum og er vinnutíminn 4-5 klst. á viku seinnipart dags, á kvöldin og/eða um helgar. Þessi störf eru tilvalin fyrir framhaldsskólanema og fólk sem vill aukavinnu með föstu dagvinnustarfi.
Stuðningsfjölskyldur
Óskum eftir að ráða tvær stuðningsfjölskyldur til starfa fyrir tvö börn, aðra fyrir 12 ára barn og hina fyrir 4 ára barn.
Barnið dvelur hjá stuðningsfjölskyldunni eina helgi í mánuði í þeim tilgangi að létta álagi af fjölskyldu þess.
Umsóknareyðublöð fyrir ofangreind störf liggja frammi í Þjónustuveri Ráðhússins. Umsóknarfrestur er til 15.júlí. Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar. Laun fyrir störf stuðningsfulltrúa og í frekari liðveislu eru skv. kjarasamningi Starfsmannafélags ríkisstofnana (SFR) og fjármálaráðherra f.h. ríkisjóðs. Laun vegna félagslegrar liðveislu eru skv. kjarasamningi Starfsmannafélags Vestmannaeyjabæjar (STAVEY) og launanefndar sveitarfélaga.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 488-2000.