Helstu verkefni eru umsjón með verklegum framkvæmdum, eftirliti fasteigna og tækja, rekstur Fráveitu Vestmannaeyja, sorpmál, samskipti við stofnanir sveitarfélagsins, umhverfismál og önnur verkefni sem falla undir Umhverfis- og framkvæmdasvið Vestmannaeyjabæjar.
Umhverfis- og framkvæmdasvið heldur utan um allar framkvæmdir sveitarfélagsins, eftirlit með fasteignum og tækjum, fer með stjórn umhverfis- og skipulagsmála, eftirlit með orkumálum sveitarfélagsins, rekstur Þjónustumiðstöðvar, Slökkviliðs, Fráveitu, Sorpflokkunarstöðvar og Vestmannaeyjahafnar.
Á Umhverfis- og framkvæmdasviði starfa framkvæmdastjóri, skipulags- og byggingarfulltrúi, verkefnisstjóri, tækniteiknari og ritari.
Leitað er eftir einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt og á auðvelt með að tileinka sér þau verkefni sem unnið er við hverju sinni.
Hæfniskröfur: Æskilegt er að viðkomandi hafi menntun sem nýtist í starfi. Gerð er krafa um starfsreynslu. Þekking á dælukerfum er æskileg sem og þekking á Microstation eða sambærilegum teikniforritum. Gerð er krafa um þekkingu á Excel, Word og æskilegt að viðkomandi hafi þekkingu á Project eða sambærilegum forritum. Enskukunnátta skilyrði.
Nánari upplýsingar fást í netfangi: umhverfissvid@vestmannaeyjar.is
Umsóknarfrestur er til 20.sept. 2012 og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknir berist til:
Umhverfis- og framkvmdasvið Vestmannaeyjabæjar
Bt. Ólafur Þ Snorrason
Ráðhúsinu
900 Vestmannaeyjar
eða á netafangið: umhverfissvið@vestmannaeyjar.is